Pétur Kjerúlf, Þessi yndislegi strákur er nú farin fyrir fullt og allt. Það er ekki fyrr en það gerist sem maður finnur hversu sárt er að missa. Ég þekti hann nú ekki náið en get samt sagt að þessi strákur gat alltaf komið manni til þess að hlæja, og var alltaf duglegur að hringja öðru hverju meðan á fylleríum stóð :) það var alltaf jafn gaman að hlusta á hann roflandi um hina og þessa. En mikið rosalega er gott að vita af því að þú ert fundinn og komin á hlýjan og góðan stað. Ég mun aldrei gleyma þér þú verður alltaf í minningu minni.
Guð geymi þig Pétur Kjerúlf og farðu vel með þig þarna uppi :)
Hvíldu í friði elsku Pétur, ég mun ALDREI gleima hversu yndislegur og æðislegur drengur þú varst. Þú verður alltaf hjá okkur þó að við sjáum þig ekki ég trúi því að þú munir vaka yfir okkur og passa að það komi ekkert slæmt fyrir. þetta verða erfiðir tímar framundan og þú verður að passa fjölskildu þín vel og okkur hin líka :'(
Ég bara get ekki hugsað um neitt annað en Pétur, ég gleimi aldrei þegar við fórum í sund ég, Petra, Pétur og Adam og við vorum öll í pottinum svo var okkur Petru orðið svo heitt svo við stukkum í laugina, og vorum svo mikið að spjalla og svo eftir smá stund kallaði Pétur sár "um hvað eru þið eiginlega að tala við Adam erum búnir að labba tvo hringi í kringum laugina naktir og þið tókuð ekki eftir því !" haha það var svo fyndið :D. eitthvern tíman löbbuðum við út á sjoppu og hann gerði alltaf grín af því hvað ég subbaði mig mikið út af ísnum og ég hló svo mikið að ég gat ekki borðað ísinn. Svo hringdiru í mig á áramótunum og þurftir sko að segja mér frá öllum sprengjunum sem þú sprengdir og stjornuljósið sem þú varst næstum búin að kveikja í þér.
þetta er ömurlegt að þú skulir vera farinn fyrir fullt og allt. Þú áttir allt lífið framundan! og þinn tími var ekki komin. En ég er svo ánægð að þú skulir vera fundinn og ert komin á betri stað. Það líkaði öllum vel við þig, þú hleiptir öllum að þér, og þú varst vinur vina þinna sem voru annsi margir og þeir sem þekkja þig munu sko aldrei gleima þér því þú varst frábær strákur og vildir allt fyrir alla gera.
Ég vona bara elsku Pétur að þér líki vel þarna uppi og hafir það gott. Guð mun geima þig vel og ég vona að Guð sendi þig til að vaka yfir okkur öllum í nótt.
Það er bara allt of erfitt að hugsa til þess hvernig þú fórst frá okkur. Ég hugsaði að þu myndir bjarga þér og ég hélt alltaf í vonina um að þú hefðir komist í skjól eitthvert og værir heill á húfi en svo var ekki :( Guð hefur viljað hjálpað þér með því að taka þig að sér og hlýja þér, því þér var orðið kalt og hann hefur þótt það best að hlýja þér sjálfur.
Ég votta fjölskyldu, vinum og kunningjum Péturs alla mína samúð
