Við erum að tala um góða helgi :D ... Fór frá Þórshöfn með flugi á Akureyri og fór til Læknis á föstudaginn og ætlaði svo að leita að Afa mínum en fann hann ekki, því hann ætlaði að skuttla mér á Lauga. En ég ákvað að kíkja á fólkið á Vistini á Akureyri og fann þar tvo gutta sem voru að fara yfir á Vopnafjörð (Guðna og Smára) svo ég ákvað að fá far með þeim yfir á Lauga. Um kvöldið var farið í útilegu :D Allir klæddu sig í hlý föt og svo var haldið af stað .. löbbuðum eitthvað útí skóg og týndum eldivið og kveiktum bál og svo var spilað,sungið og sötrað til 4 um nóttina Laugardagurinn var tekin með ró bara rölt um á náttfötunum út um allt,svo um kvöldið fórum við yfir á Ak og leigðum okkur hótel herbergi og hittum Gerði og Þuru og rúntuðum eitthvað með þeim. Svo kíktum við á Sjallan og hittum þar fullt af Laugafólki og ég dansaði af mér fætturnar og er að drepast í fótunum .. en svo var sjallanum lokað og ég Adam og Johnny fórum á Nætursöluna og keyptum okkur samlokur ... en það var víst gleimt að panta fyrir mig ... þannig ég fékk koktelsósu og kók :D mjög gott ;)... en svo fórum við uppá Hótel og þá var búið að berja Alla greyið í spað fyrir að drepast inná Herbergi með lyklana. Og þá byrjaði stuðið Johnny brjálaðist og hringdi í Gaurana og þeir komu og það var bara allt í slagsmálum :D og ég tók í Palla greyið og las yfir honum ... og svo sofnuðum við öll inná einu herbergi og daginn eftir fórum við yfir á Lauga aftur og ég og Adam röltum niðrí smók og sögðum öllum slúðrið haha og svipirnir á krökkunum :D
en svo kom Kristín og náði í mig og ég fór heim.
svo er ég að fara aftur á föstudaginn því ég á afmæli og ætla að reyna að gera eitthvað skemmtilegt :D
Emma Lovísa Diego
